Jæja ætla að reyna að láta reyna á heilsublogg hérna mér í hag og vonandi öðrum líka:)
Ég 24 ára og langar að losna við að minnsta kosti 10-15 kíló :)
Er búin að losna við áður 25 kíló en náði að koma mér á fast og bætti á mig 5 kílóum aftur :o/ en þá Þýðir ekkert annað en að koma sér í gang aftur ... þó ég viti nú ekki alveg hvaðan þessi 5 kíló komu því ég hef alltaf verið mikið fyrir að fara reglulega í ræktina ég fer í minnsta lagi 3 til 6 sinnum í viku :) ef ég fer ekki í ræktina er ég ónýt það er bara þannig .. :) en ég var farin að taka heila nammidagahelgi en ekki einn nammidag eins og ég gerði :o/ þetta er fljótt að safnast á rassinn þetta nammiát :(
En ég er alveg stopp í að léttast og þarf að losna við já eins og ég sagði hér áður 10-15 kíló.
Þannig ég gerðist svo frökk að leyfa vinkonu minni sem er dreifingaraðili hjá Herbalife að skrá mig í þyngdaráskorunar námskeið hjá herbalife ... það kostaði 6000 inn og 1 sæti fær 50 % af vinningnum svo það er til mikils að vinna :) og þar sem ég er gígantísk keppnismanneskja ætla ég að vinna þetta :)
þetta er ekki 12 vikur eins og vanalega en þetta eru 8 vikur :) og ég vona bara að þetta eigi eftir að koma mér nær markmiðinu mínu :D
Ég reyndar byrjaði á herbalife í dag ;) og hljómar matardagbókin og hreyfingin fyrir daginn í dag svona :
06:00 =stöðvaþjálfun hjá Sigþór í Hress ( kreisí tímar)
07:00 =herbalife shake 2 kúfullar skeiðar cookies and cream og ein og hálf próteinskeið :)
09:00 banani
11:20 =hrærði 3 egg án rauðunar og setti saxaða papriku og eina skinku sneið fuuuuulllt af spínati og skellti á pönnu :) mjög gott og saðsamt í mallakútinn.
13:00 =epli lítið og pera
15:00= herbalife sheik eins og í morgunmat. og hálfur banani með
17:00= hálfur banani
17:30 RÆKTIN ( BRENNSLA 30 MIN)
19:30= steikti hamborgara með fuuulllt af káli og enginn sósa ..
( veit að maður á helst ekki að borða brauð en þar sem ég er blankur námsmaður þá borða ég bara það sem er í kvöldmat heima hjá mömmu en er ekkert að missa mig neitt að fá mér of mikið, bara svona temmilegt)
smá ráð: mér finnst voða gott að fá mér lítin disk ( kökudisk) þegar það er kvöldmatur, þá er maður ekki að fá sér of mikið :)
No comments:
Post a Comment