Total Pageviews

Thursday, October 13, 2011

Jæja styttist í þyngdaráskorunar námskeiðið ;)

Dagurinn í dag er búin að vera góður bara hjá mér :)

Reyndar ætlaði ég í body attack klukkan 6 í morgun eeeen það var svo klikkað veður og ég var að byrja á þessu mánaðarlega í gær að ég frestaði því um nokkra tíma og fór bara í staðin klukkan 17:30 hjá Halfdán í hress ( sem er án gríns hressasti dúddi sem ég veit um) .. Hann gæti án djóks fyllt heila þjóð af gleði bara með því að standa og brosa haha ..


Mér finnst alveg glatað að plana eitthvað samt og standa ekki við það , það getur alveg skemmt daginn hjá mér gjörsamlega , mætti síðan í skólann klukkan 8 um morguninn og var bara ekkert fersk . En það er svona að mæta ekki í ræktina á morgnana fyrir amstur dagsins...

Mér finnst dagurinn bara alltaf betri þegar ég er búin að fara í gymmið :) en okei ég ætla að koma mér að efninu hérna hehe.

matardagbókin hjá mér í dag hljóðar svona :

07:00 : herbalife shake +prótein (cookies and cream) og skellti smá frosnum ananas með bara smá í lófan og mixaði í mixer :) mmm mjög gott :)
09:00 = epli og abt létt jógúrt
11:00= banani
14:00= hafragrautur með kanil ( ath ekki sykur bara kanill) ( mega hollt)
17:00 = herbalife sjake eins og í morgun nema ekki ananas               (blandaði með fjörmjólk 250 ml)
19:30= þá var það heimilismaturinn sem ég get ekki sleppt því ég er blankur námsmaður og bý hjá mömmu :P sem er meistara kokkur
en ég fékk pottrétt og hvítlauksbrauð en ath ég fékk mér ekki mikið bara smá slettu og ögn af brauði ( ekki gott að þenja magan út af kolvetnum fyrir svefnin held ég )

og með öllum þessum máltíðum drakk ég FUUULLT af vatni :) er búin að vera eins og kona sem er komin 9 mán á leið hérna geri ekki annað en að pissa þetta er orðið smá vandræðalegt :)

en já ég verð sam að passa að fara ekki of hart í þetta ég er að fara að vinna átaksnámskeið herbalife :P má ekki missa of mikið fyrir 24 oct ;) en alltílagi að byrja aðeins .. enda er ég að gera þetta allt fyrir sjálfan mig :)


Ég er svo ákveðin að þetta er rosalegt  :) 


en þetta er komið gott í bili :)

bollukveðjur :)









No comments:

Post a Comment