Já það má segja að ég hafi verið dáldið öflug í heilsunni í gær :D
startaði daginn á að fara í Stöðvaþjálfun hjá Sigþóri í Hress , og sá tími var geðveikur by the way :)
Það gjörsamlega lak sviti á stöðum sem ég vissi ekki einu sinni að fólk gæti svitnað á :oO ....
Matardagbók :
07:00 = Herbalife shake(léttmjólk)250 ml með hálfum banana í mixer :)
09:30 = skyr.is með perubragði
11:20= 2 lítil epli og stuttu seinna fékk ég mér einn banana því ég var ekki mikið södd af þessum eplum, þau voru sko á stærð við tvo tíkalla liggur við:/
13:30 = Eldaði yndislegi kæróinn minn handa mér hafragraut :) mm besti hafragrautur sem ég hef smakkað ( greinilegt að eldamenskan er ekki mín sterkasta hlið) :o/
17:00 = herbalife shake 250 ml með léttmjólk
19:30 = Og að lokum fékk ég besta heilsumatinn minn kjúklingabringur í ofni með sætum kartöflum og fuuuuulllt af spínati og smá feta .. þetta er bara GURMEE sko!! namm namm
( en fékk mér ekki mikið á diskinn ;) ) bara svona temmilegt í mallann :)
Svo skellti ég mér í videó til vinkonu minnar , og vanalega þegar við hittumst í videó þá er það bara sukk all the way eeeen ég varð að láta vatnsglasið góða nægja ;) og fór með góða samvisku og engan útþandan maga heim :)
Takk fyrir pent bless :)
No comments:
Post a Comment