Total Pageviews

Sunday, October 16, 2011

úff ég get ekki sagt að ég hafi verið neitt mega holl í dag sko :/ en ég reyndi ... er ekki enn byrjuð á þessu námskeiði byrja ekki á því fyrr en 24 oct :) þá verð ég fyrst vigtuð og ummálsmæld og allan þann pakka ;) ...þannig ég er svona að nota seinustu dagana í smá svindl , en er svo mega ákveðin þessa dagana að ég fer bara í fílu útí sjálfan mig ef ég svindla og enda með einhverjum mega göngutúr eftir smá nart! ... sem er bara gott held ég . Þá veit ég það bara að þegar ég svindla þá endar það bara með að púla ennþá meira í ræktinni !! það er ekkert flóknara en það ...


en jamm 'úff' okei matardagbókin í dag :

11:30 = (var á næturvakt) en já herbalife shake með fjörmjólk
og eplabátur.
14:30
= Fór með kæró í Hagkaup og endaði með mega löngun í allt nammið þarna en endaði á hnetubarnum þar og missti það :o/  ("note to self "aldei fara svöng í Hagkaup) keypti alveg fyrir heilar 1022 kr eða kallinn endaði með að borga það :o/ en já ég held ég hafi étið svona 300-400 gr af pokanum :( veit að lúka af hnetum er gott milli mála eeen ekki 300-400 gr þannig að REFSING fyrir mig !! en ég er samt ánægð með að hafa keypt hnetur en ekki nammi :) engin sykur í hnetum ;)


19:30 = okei svo kom mömmumatur. Þau eru náttla ekki alveg að missa sig í átakinu eins og ég þó þau eru nú holl oftast nær :) En það var sveittur dagur hjá þeim í kvöld og þau pöntuðu Kfc kjúllabita :/ og eins og ég sagði hérna fyrr í blogginu hjá mér þá borða ég það sem er á boðstólnum á kvöldin hérna heima .. en vitið menn kjellan sleppti frönskunum og allri sósu og fékk sér bara 2 kjúllabita og grænmeti sleppti líka gosinu og fékk mér bara vatn í staðin :) 

En fékk samt samviksubit og var að koma núna úr þvílíkri kraftgöngu með hundinum mínum :)


p.s: ég veit það er talað um 6 sinnum á dag sem maður á að borða og lítið í einu ( stóð ekki alveg við það í dag en geri það nú oftast) .

Málið er bara að þegar maður dettur úr rútínuni eins og ég gerði í dag þá finnst mér allt fokkast upp ( en þarf að bæta það) Er nefnilega barþjónn og var að vinna næturvakt í gær ... :/

En ætla að segja þetta gott í dag :)

Svo bara starta ég vikuni á morgun í Tabata klukkan 06:00 takk fyrir !!!

No comments:

Post a Comment