Total Pageviews

Monday, October 24, 2011

Loksins Blogg !! Áskorunin hjá Herbó byrjaði formlega í dag hjá þeim :)

halló :) 
 


 Matardagbókin mín í dag :

07:00 = herbalife shake
09:50= bláberjaskyr
11:30=pera (mjöög lítil held ég hafi aldrei séð eins smágerða peru )
12:30= vannillu herbalife shake ( note to self) verður að blanda eitthvað með honum annars er hann tær viðbjóður það er bara þannig ) ..
15:00= próteinstykki (herbó með hnetum) og epli
17:00= ein ausa grænmetissúpa ( rest síðan í gær)
20:00= grænmetissúpa

( fullt af vatni og 2 brúsar herbó Te :D ) vá þetta herbó te er undra efni .. var bara hyper fyrir allan peningin !! :O


Ég vil líka taka það fram að ég vaknaði klukkan 05:30 í nótt og fór í klikkaðasta Tabata tíma ever !! ég án djóks hélt ég væri farinn  að leka, frussaðist alveg svitinn um allar trissur ;) alriiiiight




veit þetta eru sjö máltíðir í dag !! en ég var svöng og ég er bara ekki að fara að svelta mig .. þannig er það bara :)

En samkvæmt mínum bókum , eru þetta kaloríurnar í dag :

herbó shake 2 stk : 540  kcal
skyr : 90 kcal
epli 2 stk  : 150 kcal (miða við stærð)
pera : 60 kcal (miða við stærð)
próteinstykki : 140 kcal
súpa : 500 kcal ( veit það samt ekki ) er ábyggilega ekki svona mikið :o/ bara svona sirka á þetta

1500 kcal sirka ;)


En svo ég haldi nú áfram að blaðra , þá fór í ég í fyrstu vigtunina mína hjá Herbalife í dag ,
ballið er semsagt að byrja , alvaran er komin! .. en ég var nú ekkert par hrifinn, því að á vigtinni í Hress og vigtinni heima hjá mér sýndi allt aðrar tölur en vigtin hjá Herbalife, hjá Herbalife var ég alveg 2 kílóum þyngri en heima :( .. ég veit alveg að allar vigtir sýna mismunandi og að maður á bara að halda sig við eina vigt , en þetta er bara svo sárt eitthvað , þegar maður er í baráttuni við aukakílóin alltaf hreint ....!!


en ekki hægt að vera að væla útaf því endalaust þá er bara ennþá meira challence FOR ME !!

en ég ætla að segja þetta gott í bili fer bráðum að koma mér í ró því það er gymm time klukkan 05:30 takk fyrir pent bless !:)






No comments:

Post a Comment