Total Pageviews

Monday, November 7, 2011

900 grömm í þessri viku :)

Var að koma úr vigtun í dag var mega duglega mánudag til föstudags en endaði svo í skæirnarveislu og laugardeginum og afmælisveiksu um kvöldið en ég missti það ekkert fékk mér bara lítið á diskinn og drakk vatn með og auðvitað fékk ég mér herbalife shake í morgumat ... en svo fékk ég mér smá alkohol sem ég veit að er allgjörlega á bannlista yfir fólk sem vill grenna sig enda var ég léttari fyrir laugardagskvöldið en á sunnudeginum þegar ég viktaði mig :/ en núna er áfengi ekki að fara að koma inn fyrir mínar varir fyrr en eftir jól ! ég er að fara að ná markmiðinu mínu :) og hana nú !!

En dagurinn í dag var erfiðari en flestir dagar þar sem áfengi lætur mig hafa óstjórnlega löngun í óhollustu !!! 


en ég herti mig og fékk mér minn shake í morgun með hálfum banana og smá berjum :) í millimál fékk ég mér próteinstykki 
og í hádeginu cookies and cream herbalife shake með létt mjólk og eina appelsínu :)
og aftur í millimál var það próteinstykki
og í kvöldmat fékk ég mér soðinn fisk með soðnu grænmeti !!

veit þetta er of lítið sem ég fékk mér í dag ! en ekki var listin mikil hjá mér en ég drakk nóg af vatni :) og fór í gymmið í morgun klukkan 05:15 í tabata X-treme tíma ;D hressandi


En þetta er komið gott í bili :) lofa að standa mig betur í blogginu ;) áfram hollustann

Tuesday, November 1, 2011

Matardagbók :)

skellti mér í alveg hreint magnaðan Tabata tíma í morgun , hjá Ólöfu í Hress ... hún kann sko að láta mann finna fyrir því , það er bara þannig ! :)

Er alveg mð góða strengi í bossanum :) enda er ég búin að þyngja stöngina mína um 5 kíló var fyrst alltaf með 10 kg :) og vitið menn kjellan fór bara létt með það .. en er að finna smá fyrir þessu núna :S




en þá er það þessi daglega matardagbók :)


07:30 vannillushake með fjörmjólk 250 og lúku af blönduðum berjum og soldið af klökum :) mmm
10:30: banani
11:30: próteinstykki



13:15: cookies and cream shake með fjörmjólk 250 ml
15:15 : epli og próteinstykki
18:30 : steikti magra skinku og sveppi fullt af spínati og papriku með 4 eggjahvítum á pönnu síðan í kvöldmat ..

mér finnst ég búin að vera rosa orkumikil í dag :)
Herbalife er greinilega að gera það gott ;D


get ekki beðið eftir að missa meira í næstu viku :)

Monday, October 31, 2011

1 kíló farið :D :D :D

Já er loksins búin með fyrstu vigtunina mína og vitið menn!! kíló farið ;)

ég er svo ánægð enda búið að vera sviti og púl þessa vikuna fór 5 sinnum í ræktina í 1 og hálfann tíma í senn semsagt 7,5 tími af púli ;) og mér líður svo vel :) finn alveg mun á mér eftir að ég er búin að vera svona dugleg í ræktini ..:)


ég ætlaði í stöðvaþjálfun á Laugardaginn en endaði á að vera að vinna vann alveg frá klukkan 10 um morguninn til klukkan 3 um nóttina :/ var að vinna á tvem stöðum ( svona er að vera í skóla )

og ég veit ég er ekki búin að vera dugleg að blogga seinustu 3 daga en það er bara búið að vera kreisí að gera í vinnu og öðru :/

en svona hljóðar matardagbókin mín í dag:)


07:00 = Vanillu herbalife shake með blönduðum berjum (lúka)og fjörmjólk 250 ml
..
10:00 = banani
11:30= herbalife cookies and cream með léttmjólk 250 ml  og pera
13:30= lítið hrökkex með kotasælu og papriku
15:00 = próteinstykki og epli
18:00 = nart í próteinstykki og te í vigtunini hjá herbalife
19:30= Fajitas Kjúlli ( vil bara taka það fram að hann er ekki mega hollur ) þori ekki að segja hvað er í honum ... 


en það sem ég var svo dugleg um helgina og i vikunni þá á maður nú að eiga inni einn uppáhaldsmat ;) ..



en það voru nú fleir sem misstu alveg slatta á þessu námskeiði ein missti fokkings 3 KG :O ekkert smá flott hjá henni og tveir misstu 2,8 kg og ein sem missti 2,7 KG ...

en það þýðir ekki að vera að gremja sig yfir því ég næ þeim bara í næstu viku ;) ég ætla að gefa mig 100 % í næstu viku sko!! ekkert rugl

over and out !!

Thursday, October 27, 2011

matardagbók 27.10

Jæja þá er það blessaði fimmtudagurinn :) 4 dagar 
i vigtun :/ ég fer að borða klósettpappír ef ég léttist ekki!! ;( hehe


en í morgunmat (07:30)eftir 1,5 klst í ræktini ;) : fékk ég mér vannilluherbó með lúku af hindberjum í fjörmjólk:)


09:30 próteinstykki og tómatur :)


11:00 tómatur ( fullur af andoxunarefnum , ég verð eins og nýfædd ha!!)
13:00 herbalife shake ( cookies and cream) í 250 ml léttmjólk 


15:30 hrökkex með kotasælu og gulrót


19:10: 1 og hálf gróf píta með sýrðum rjóma,skinku(mögur)fullt af spínati og tómötum og gúrku :)


vona að ég fari að sjá einhvern kílóamissi :) vil helst vigta mig vikulega og ætla ég bara að nota mánudagana í það hjá Herbalife :) það er ekkert hollt að vera að vigta sig endalaust .. eða ekki hjá mér allavegana ég má ekki þyngjast um gramm þá er ég komin í fílu liggur við haha ;) en góðir hlutir taka tíma :D maður verður bara að vera þolinmóð

Wednesday, October 26, 2011

07:00= herbó shake með smá mangó og bláberjum útí
09:30=próteinstykki
11:20= smá kotasæla
13:00= herbalife shake
15:00= tveir tómatar
17:30= próteinstykki
19:30 = grænmetis lasagna mmm;)


tók einn og hálfan tíma í ræktini ;) hálftími í tækjum og svo stöðvaþjálfun :)

er nokkuð ánægð með daginn bara :) vaknaði 05:15 í nótt svo ég er að pæla að skella mér uppí rúm að sofa .. :)

svo er það bara body attack í fyrró ;) whoop whoop ætla svo að vinna þessa keppni!!!

Tuesday, October 25, 2011

matardagbók 25.10.2011

Fór í ræktina í morgun í 30 min brennslu í tækjunum og síðan í Tabata tíma :) þannig að 1,5 klst er búin í dag ;)


matardagbókin i dag  :


07:00 = vannillu herbalife shake og lúka af bláberjum ( í mixer )
10:30= kotasæla og gulrót
13:00= vanilluherbalife shake með smá ananas og bláberjum í mixer
15:00= herbalife próteinstykki með hnetum
17= gúrka ( skar mér nokkra bita með í skólann)
19:00 = var að ljúka við að borða Soðna ýsu með sætri kartöflu og fullt af gænmeti :) rosa gott




svo er það Stöðvaþjálfun í fyrramálið :) whoop whoop

Monday, October 24, 2011

Loksins Blogg !! Áskorunin hjá Herbó byrjaði formlega í dag hjá þeim :)

halló :) 
 


 Matardagbókin mín í dag :

07:00 = herbalife shake
09:50= bláberjaskyr
11:30=pera (mjöög lítil held ég hafi aldrei séð eins smágerða peru )
12:30= vannillu herbalife shake ( note to self) verður að blanda eitthvað með honum annars er hann tær viðbjóður það er bara þannig ) ..
15:00= próteinstykki (herbó með hnetum) og epli
17:00= ein ausa grænmetissúpa ( rest síðan í gær)
20:00= grænmetissúpa

( fullt af vatni og 2 brúsar herbó Te :D ) vá þetta herbó te er undra efni .. var bara hyper fyrir allan peningin !! :O


Ég vil líka taka það fram að ég vaknaði klukkan 05:30 í nótt og fór í klikkaðasta Tabata tíma ever !! ég án djóks hélt ég væri farinn  að leka, frussaðist alveg svitinn um allar trissur ;) alriiiiight




veit þetta eru sjö máltíðir í dag !! en ég var svöng og ég er bara ekki að fara að svelta mig .. þannig er það bara :)

En samkvæmt mínum bókum , eru þetta kaloríurnar í dag :

herbó shake 2 stk : 540  kcal
skyr : 90 kcal
epli 2 stk  : 150 kcal (miða við stærð)
pera : 60 kcal (miða við stærð)
próteinstykki : 140 kcal
súpa : 500 kcal ( veit það samt ekki ) er ábyggilega ekki svona mikið :o/ bara svona sirka á þetta

1500 kcal sirka ;)


En svo ég haldi nú áfram að blaðra , þá fór í ég í fyrstu vigtunina mína hjá Herbalife í dag ,
ballið er semsagt að byrja , alvaran er komin! .. en ég var nú ekkert par hrifinn, því að á vigtinni í Hress og vigtinni heima hjá mér sýndi allt aðrar tölur en vigtin hjá Herbalife, hjá Herbalife var ég alveg 2 kílóum þyngri en heima :( .. ég veit alveg að allar vigtir sýna mismunandi og að maður á bara að halda sig við eina vigt , en þetta er bara svo sárt eitthvað , þegar maður er í baráttuni við aukakílóin alltaf hreint ....!!


en ekki hægt að vera að væla útaf því endalaust þá er bara ennþá meira challence FOR ME !!

en ég ætla að segja þetta gott í bili fer bráðum að koma mér í ró því það er gymm time klukkan 05:30 takk fyrir pent bless !:)






Wednesday, October 19, 2011

matardagbók 19.10

stöðvaþjálfun Sigþór klukkan 6


07:30herbó shake
10:30 brauðsneið :/ með kotasælu ( ekki gott) i know
13:00 skyr
15:00 herbó shake
17:00 epli
19:00 hrísgrjónagrautur með rúsínum

drakk fullt af vatni og tók trefja og vítamín töflurnar mínar :)

ekki besti dagurinn minn í dag en hann verður betri á morgun! stundum koma bara þessi dagar en þá er bara að rífa sig upp og taka ennþá meira á því á morgun :) get ekki beðið eftir Laugardeginum samt þá ætla ég að fá mér pínku nammi :/ langt síðan síðast :)

Tuesday, October 18, 2011

matadagbókin fyrir daginn í dag.

10:30 = herbalife shake eins og hina dagana :) 250 ml léttmjólk
12:50=gróf vefja með spínati(fullt) og gúrku og sýrðum rjóma
15:00= herbalife shake
17:00= epli
19:00= heilsuréttur úr bónus ( með brúnum hrísgjónum,kjúlla,spínat og eggjum) mjög góður
setti reyndar smá sojasósu útí því annars er þetta svo bragðlaust eitthvað :/

 en svona borðaði ég í dag :P

fór í Tabata tíma í morgun kl 09:15 hjá Lindu og er með góða strengi í lærum og rassi :)

svo er það bara að vakna 6 í fyrró og skella mér í stöðvó hjá Sigþór úff vona að ég nái að koma lifandi úr þeim tíma ;)

Gærdagurinn 18 oct :)

Já ég er búin að vera heldur betur mögnuð :) 

fór í Tabata x-tra tíma hjá Jónu Ellen í hress.. þar sem við erum að vinna í 40 sek lotum og svo 10 sek hvíld .. og gerum klikkaðar æfingar í öllum lotunum .. ég er allavegana með góðar harðsperrur í rassinum .. var einmitt að koma úr tíma núna hjá Lindu í hress en það var venjulegur Tabata tími sem er 20 sek og 10 sek pása og voru góðar æfingar í þeim tíma líka :) allavegana svitnaði ég veeel .




Matardagbók fyrir 17.oct :

07:00=Herbalife shake 2 skeiðar cookies cream og 2 próteinskeiðar.
09:50= það sama og í morgunmat ( var á smá hraðferð hafði ekki tíma í að vera með fjölbreytni akkurat þarna:/ ( þessvegna finnst mér herbalife líka henta mér svo vel ég er bara ALLTAF á hraðferð )
11:20= banani og skyr.is dolla  (ekki drykkjarjógúrt)
13:00= gróf boritovefja með fullt af spínati og ost og tómötum og sýrðum rjóma.
15:00=harðfiskur í skólanum
(17:00)(smá harðfiskur á milli því það var svo langt í matin :o/ )

19:00= Karrý fiskur með fullt af grænmeti :) rosa hollt og mega gott frá mömmu :)


adios :)


Sunday, October 16, 2011

úff ég get ekki sagt að ég hafi verið neitt mega holl í dag sko :/ en ég reyndi ... er ekki enn byrjuð á þessu námskeiði byrja ekki á því fyrr en 24 oct :) þá verð ég fyrst vigtuð og ummálsmæld og allan þann pakka ;) ...þannig ég er svona að nota seinustu dagana í smá svindl , en er svo mega ákveðin þessa dagana að ég fer bara í fílu útí sjálfan mig ef ég svindla og enda með einhverjum mega göngutúr eftir smá nart! ... sem er bara gott held ég . Þá veit ég það bara að þegar ég svindla þá endar það bara með að púla ennþá meira í ræktinni !! það er ekkert flóknara en það ...


en jamm 'úff' okei matardagbókin í dag :

11:30 = (var á næturvakt) en já herbalife shake með fjörmjólk
og eplabátur.
14:30
= Fór með kæró í Hagkaup og endaði með mega löngun í allt nammið þarna en endaði á hnetubarnum þar og missti það :o/  ("note to self "aldei fara svöng í Hagkaup) keypti alveg fyrir heilar 1022 kr eða kallinn endaði með að borga það :o/ en já ég held ég hafi étið svona 300-400 gr af pokanum :( veit að lúka af hnetum er gott milli mála eeen ekki 300-400 gr þannig að REFSING fyrir mig !! en ég er samt ánægð með að hafa keypt hnetur en ekki nammi :) engin sykur í hnetum ;)


19:30 = okei svo kom mömmumatur. Þau eru náttla ekki alveg að missa sig í átakinu eins og ég þó þau eru nú holl oftast nær :) En það var sveittur dagur hjá þeim í kvöld og þau pöntuðu Kfc kjúllabita :/ og eins og ég sagði hérna fyrr í blogginu hjá mér þá borða ég það sem er á boðstólnum á kvöldin hérna heima .. en vitið menn kjellan sleppti frönskunum og allri sósu og fékk sér bara 2 kjúllabita og grænmeti sleppti líka gosinu og fékk mér bara vatn í staðin :) 

En fékk samt samviksubit og var að koma núna úr þvílíkri kraftgöngu með hundinum mínum :)


p.s: ég veit það er talað um 6 sinnum á dag sem maður á að borða og lítið í einu ( stóð ekki alveg við það í dag en geri það nú oftast) .

Málið er bara að þegar maður dettur úr rútínuni eins og ég gerði í dag þá finnst mér allt fokkast upp ( en þarf að bæta það) Er nefnilega barþjónn og var að vinna næturvakt í gær ... :/

En ætla að segja þetta gott í dag :)

Svo bara starta ég vikuni á morgun í Tabata klukkan 06:00 takk fyrir !!!

Saturday, October 15, 2011

Gærdagurinn 14.oct :)

Já það má segja að ég hafi verið dáldið öflug í heilsunni í gær  :D

startaði daginn á að fara í Stöðvaþjálfun hjá Sigþóri í Hress , og sá tími var geðveikur by the way :)
Það gjörsamlega lak sviti á stöðum sem ég vissi ekki einu sinni að fólk gæti svitnað á
:oO ....

Matardagbók :

07:00 = Herbalife shake(léttmjólk)250 ml með hálfum banana í mixer :)
09:30 = skyr.is með perubragði
11:20= 2 lítil epli og stuttu seinna fékk ég mér einn banana því ég var ekki mikið södd af þessum eplum, þau voru sko á stærð við tvo tíkalla liggur við:/
13:30 = Eldaði yndislegi kæróinn minn handa mér hafragraut :) mm besti hafragrautur sem ég hef smakkað ( greinilegt að eldamenskan er ekki mín sterkasta hlið) :o/ 
17:00 = herbalife shake 250 ml með léttmjólk
19:30 =
Og að lokum fékk ég besta heilsumatinn minn kjúklingabringur í ofni með sætum kartöflum og fuuuuulllt af spínati og smá feta .. þetta er bara GURMEE sko!! namm namm
( en fékk mér ekki mikið á diskinn ;) ) bara svona temmilegt í mallann :)

Svo skellti ég mér í videó til vinkonu minnar , og vanalega þegar við hittumst í videó þá er það bara sukk all the way eeeen ég varð að láta vatnsglasið góða nægja ;) og fór með góða samvisku og engan útþandan maga heim :) 



Takk fyrir pent bless :)


Thursday, October 13, 2011

Jæja styttist í þyngdaráskorunar námskeiðið ;)

Dagurinn í dag er búin að vera góður bara hjá mér :)

Reyndar ætlaði ég í body attack klukkan 6 í morgun eeeen það var svo klikkað veður og ég var að byrja á þessu mánaðarlega í gær að ég frestaði því um nokkra tíma og fór bara í staðin klukkan 17:30 hjá Halfdán í hress ( sem er án gríns hressasti dúddi sem ég veit um) .. Hann gæti án djóks fyllt heila þjóð af gleði bara með því að standa og brosa haha ..


Mér finnst alveg glatað að plana eitthvað samt og standa ekki við það , það getur alveg skemmt daginn hjá mér gjörsamlega , mætti síðan í skólann klukkan 8 um morguninn og var bara ekkert fersk . En það er svona að mæta ekki í ræktina á morgnana fyrir amstur dagsins...

Mér finnst dagurinn bara alltaf betri þegar ég er búin að fara í gymmið :) en okei ég ætla að koma mér að efninu hérna hehe.

matardagbókin hjá mér í dag hljóðar svona :

07:00 : herbalife shake +prótein (cookies and cream) og skellti smá frosnum ananas með bara smá í lófan og mixaði í mixer :) mmm mjög gott :)
09:00 = epli og abt létt jógúrt
11:00= banani
14:00= hafragrautur með kanil ( ath ekki sykur bara kanill) ( mega hollt)
17:00 = herbalife sjake eins og í morgun nema ekki ananas               (blandaði með fjörmjólk 250 ml)
19:30= þá var það heimilismaturinn sem ég get ekki sleppt því ég er blankur námsmaður og bý hjá mömmu :P sem er meistara kokkur
en ég fékk pottrétt og hvítlauksbrauð en ath ég fékk mér ekki mikið bara smá slettu og ögn af brauði ( ekki gott að þenja magan út af kolvetnum fyrir svefnin held ég )

og með öllum þessum máltíðum drakk ég FUUULLT af vatni :) er búin að vera eins og kona sem er komin 9 mán á leið hérna geri ekki annað en að pissa þetta er orðið smá vandræðalegt :)

en já ég verð sam að passa að fara ekki of hart í þetta ég er að fara að vinna átaksnámskeið herbalife :P má ekki missa of mikið fyrir 24 oct ;) en alltílagi að byrja aðeins .. enda er ég að gera þetta allt fyrir sjálfan mig :)


Ég er svo ákveðin að þetta er rosalegt  :) 


en þetta er komið gott í bili :)

bollukveðjur :)









Wednesday, October 12, 2011

Er komin með nóg ... nú ætla ég að ná markmiðinu mínu !! og það fyrir jól :)

Jæja ætla að reyna að láta reyna á heilsublogg hérna mér í hag og vonandi öðrum líka:)


 Ég 24 ára og langar að losna við að minnsta kosti 10-15 kíló :)

Er búin að losna við áður 25 kíló en náði að koma mér á fast og bætti á mig 5 kílóum aftur :o/ en þá Þýðir ekkert annað en að koma sér í gang aftur ... þó ég viti nú ekki alveg hvaðan þessi 5 kíló komu því ég hef alltaf verið mikið fyrir að fara reglulega í ræktina ég fer í minnsta lagi 3 til 6 sinnum í viku :) ef ég fer ekki í ræktina er ég ónýt það er bara þannig .. :) en ég var farin að taka heila nammidagahelgi en ekki einn nammidag eins og ég gerði :o/ þetta er fljótt að safnast á rassinn þetta nammiát :( 


En ég er alveg stopp í að léttast og þarf að losna við já eins og ég sagði hér áður 10-15 kíló.


Þannig ég gerðist svo frökk að leyfa vinkonu minni sem er dreifingaraðili hjá Herbalife að skrá mig í þyngdaráskorunar námskeið hjá herbalife ... það kostaði 6000 inn og 1 sæti fær 50 % af vinningnum svo það er til mikils að vinna :) og þar sem ég er gígantísk keppnismanneskja ætla ég að vinna þetta :)


þetta er ekki 12 vikur eins og vanalega en þetta eru 8 vikur :) og ég vona bara að þetta eigi eftir að koma mér nær markmiðinu
mínu :D

Ég reyndar byrjaði á herbalife í dag ;) og hljómar matardagbókin og hreyfingin fyrir daginn í dag svona : 

06:00 =stöðvaþjálfun hjá Sigþór í Hress ( kreisí tímar)
07:00 =herbalife shake 2 kúfullar skeiðar cookies and cream og    ein og hálf  próteinskeið :)
09:00 banani
11:20 =hrærði 3 egg án rauðunar og setti saxaða papriku og eina skinku sneið fuuuuulllt af spínati  og skellti á pönnu :) mjög gott og saðsamt í mallakútinn.
13:00 =epli lítið og pera 

15:00= herbalife sheik eins og í morgunmat. og hálfur banani með
17:00= hálfur banani
17:30 RÆKTIN ( BRENNSLA 30 MIN)
19:30= steikti hamborgara með fuuulllt af káli og enginn sósa ..
( veit að maður á helst ekki að borða brauð en þar sem ég er blankur námsmaður þá borða ég bara það sem er í kvöldmat heima hjá mömmu en er ekkert að missa mig neitt að fá mér of mikið, bara svona temmilegt)


smá ráð: mér finnst voða gott að fá mér lítin disk ( kökudisk) þegar það er kvöldmatur, þá er maður ekki að fá sér of mikið :)